Austurríkismenn jöfnuðu á lokamínútum leiksins

Leikur Alsír og Austurríkis endaði með jafntefli 3-3 í leik liðanna í J-riðli á leikvanginum í Kansas í Bandaríkjunum í nótt. Marki Arnautovic skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Austurríkismenn á 28. mínútu leiksins. Rafik Belghali skoraði á 45. mínútu leiksins fyrir Alsír og því…

Fréttastofa RÚV ruv.is

Sign in to comment.

Leikur Alsír og Austurríkis endaði með jafntefli 3-3 í leik liðanna í J-riðli á leikvanginum í Kansas í Bandaríkjunum í nótt.

Marki Arnautovic skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Austurríkismenn á 28. mínútu leiksins. Rafik Belghali skoraði á 45. mínútu leiksins fyrir Alsír og því fóru liðin jöfn inn í hálfleik.

Marcel Sabitzer skoraði annað markið fyrir Austurríki á 55. mínútu og um fimm mínútum síðar var því svarað með marki Riyad Mahrez. Mahrez skoraði einnig næsta markið þegar komið var fram í uppbótatíma á 93. mínútu. Sasa Kalajdzic skoraði þriðja mark Austurríkismanna á lokamínútum leiksins eða á 96. mínútu. Þar með komast Austurríkismenn upp úr riðlinum vegna stigatölu liðanna.

Argentína er efst í riðlinum með 9 stig og Austurríki og Alsír eru jöfn með 4 stig. Öll þrjú liðin komast áfram í 32-liða úrslit, en Jórdanar eru úr leik.

Austurríkismenn mæta Spánverjum á fimmtudaginn. Alsír mætir svo Sviss á föstudaginn.

Helstu vinnureglur

Við hjá Vogabakka greinum fyrirtæki og veltum fyrir okkur stöðu á markaði og í efnahagskerfinu, bæði hér heima og erlendis. Við notum efni frá öðrum miðlum óspart, en viljum helst vinna með okkar eigið efni.


vogabakki