R Fréttastofa RÚV

Danska sendiráðið í Sýrlandi opnað á ný

Dönsk stjórnvöld hafa opnað sendiráð að nýju í Sýrlandi eftir 14 ára fjarveru. Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur og utanríkisráðherra Sýrlands, Asaad al-Shaibani, opnuðu danska sendiráðið í Damaskus í gær.

Danir og fleiri Evrópuþjóðir lokuðu sendiráðum sínum í landinu og slitu stjórnmálasambandi við ríkisstjórn Sýrlands og Bashar al Assad, þáverandi leiðtoga landsins, þegar hann beitti mótmælendur miklu harðræði í mótmælum árið 2011.

Borgarastríð hófst í kjölfar mótmælanna og fjölmörgum erlendum sendiráðum var lokað upp frá því vegna ótryggs öryggisástands í landinu. Ný stjórnvöld í Sýrlandi, undir forystu Ahmed al-Sharaa forseta Sýrlands, hafa unnið að því að styrkja diplómatísk tengsl við aðrar þjóðir.

Tyrkland og Katar voru fyrstu þjóðirnar til að opna sendiráð að nýju skömmu eftir að Assad var steypt af stóli í desember 2024. Bretar tóku upp stjórnmálasamband við Sýrlendinga á síðasta ári og sömuleiðis Þýskaland og Spánn.

Í síðasta mánuði greindi Sýrlandsforseti frá samkomulagi við Emmanuel Macron Frakklandsforseta um að opna sendiráð landanna að nýju.

Lesa greinina á ruv.is
Samtal

Skráðu þig inn til að taka þátt í samtalinu.