Nærri þúsund eldingar á hálftíma

Kona í Svíþjóð slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir eldingu í morgun. Rétt tæplega eitt þúsund eldingar mældust á um hálftíma við Malmö í morgun. Þá gekk mikið eldingaveður einnig yfir Danmörku. Ekkert lát er á hitabylgjunni sem nú gengur yfir Norður-Evrópu. Þrumuveðrið hófst…

Fréttastofa RÚV ruv.is

Sign in to comment.

Kona í Svíþjóð slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir eldingu í morgun. Rétt tæplega eitt þúsund eldingar mældust á um hálftíma við Malmö í morgun. Þá gekk mikið eldingaveður einnig yfir Danmörku. Ekkert lát er á hitabylgjunni sem nú gengur yfir Norður-Evrópu.

Þrumuveðrið hófst í gærkvöldi en náði mestum hæðum eldsnemma í morgun í Danmörku. Norður af Kaupmannahöfn laust eldingu niður í húsgafl svo það kviknaði í þaki hússins. Annars varð lítið tjón í eldingaveðrinu í Danmörku og ekki vitað um dauðsföll.

Það rigndi eins og hellt væri úr fötu sem mörgum fannst kærkomið eftir hitann í gær, en þá var danska hitametið slegið þegar hitinn fór í 37 stig á Fjóni.

Þrumuveðrið færðist svo austar þegar leið á morguninn. Um eitt þúsund eldingar mældust á um hálftíma þegar skruggurnar gengu yfir Malmö og þar austur af í skemmtigarðinum Tosselilla syðst í Svíþjóð slasaðist kona alvarlega þegar hún varð fyrir eldingu.

Sænska ríkisútvarpið segir að fjórir fullorðnir hafi slasast og fimm börn, en þetta gerðist stuttu eftir að skemmtigarðurinn var opnaður.

Búist er við miklum hita í Danmörku og Svíþjóð í dag og hiti fari víða yfir 35 stig, en fer svo nær tuttugu stigum fljótlega eftir helgina.

Helstu vinnureglur

Við hjá Vogabakka greinum fyrirtæki og veltum fyrir okkur stöðu á markaði og í efnahagskerfinu, bæði hér heima og erlendis. Við notum efni frá öðrum miðlum óspart, en viljum helst vinna með okkar eigið efni.


vogabakki