11 fórust í flugslysi í Frakklandi

Ellefu manns eru sagðir hafa farist í flugslysi í Frakklandi í dag. Hinir látnu voru í lítilli flugvél og hugðust fara í fallhlífarstökk. Í hópnum voru fimm kennarar, fimm nemendur og einn reyndur flugmaður, að er fram kemur í frétt AFP. Samkvæmt franska fjölmiðlinum L'Est…

Fréttastofa RÚV ruv.is

Sign in to comment.

Ellefu manns eru sagðir hafa farist í flugslysi í Frakklandi í dag. Hinir látnu voru í lítilli flugvél og hugðust fara í fallhlífarstökk. Í hópnum voru fimm kennarar, fimm nemendur og einn reyndur flugmaður, að er fram kemur í frétt AFP.

Samkvæmt franska fjölmiðlinum L'Est Républicain hrapaði flugvélin nærri bænum Tomblaine fyrir utan borgina Nancy í norðausturhluta Frakklands um klukkan 11. Hún hafnaði í grasinu nærri flugbraut Nancy-Essay flugvallarins, í grennd við íbúðahverfi og tvo vegi.

Innanríkisráðherra Frakklands, Laurent Nunez, er væntanlegur á vettvang síðdegis í dag. Orsök slyssins er enn óljós en málið sætir rannsókn frönsku lögreglunnar, samkvæmt aðstoðarsaksóknara í Nancy.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Helstu vinnureglur

Við hjá Vogabakka greinum fyrirtæki og veltum fyrir okkur stöðu á markaði og í efnahagskerfinu, bæði hér heima og erlendis. Við notum efni frá öðrum miðlum óspart, en viljum helst vinna með okkar eigið efni.


vogabakki