Maður var stunginn með hníf á barnum Riddaranum við Engihjalla í Kópavogi í gærkvöld. Lögregla mætti á vettvang og handtók árásarmanninn.
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild en frekari upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir. Að sögn Hjördísar á eftir að yfirheyra árásarmanninn en hann gisti fangageymslur í nótt.
RÚV / Ragnar Visage