Bandaríska olíufyrirtækið North American Blue Energy Partners (NABEP) kemur til með að taka yfir 17 olíuvinnslusvæði í Venesúela, samkvæmt olíusamningi sem Bandaríkin og Venesúela gerðu nýverið.
AP-fréttaveitan segir að fyrirtækið sé í eigu Venesúelamanns, Alejandro Betancourt, og fyrirtækið er nú þegar annað stærsta olíuvinnslufyrirtæki í Venesúela á eftir Chevron. Fyrirtækið fær réttindi til að vinna olíu á umræddum svæðum til 100 ára.
Samningurinn veitir Bandaríkjunum yfirráð yfir um fimmtungi olíubirgða Venesúela, 35% hlut og neitunarvaldi í fyrirtækinu. Bandaríkin fá auk þess rétt til að kaupa um 20% olíuframleiðslunnar á kostnaðarverði.
Mörg þessara olíuvinnslusvæða sem samningurinn nær til hafa áður verið nýtt af rússneskum og kínverskum fyrirtækjum.
Nokkrir bandarískir þingmenn hafa kallað eftir frekari upplýsingum um samninginn. Repúblikaninn Ruck Crawford, yfirmaður leyniþjónustunefndar fulltrúaþingsins, sagði að hann vonaðist eftir nánari upplýsingum frá ríkisstjórn Trumps, vonandi fyrr en síðar.
Öldungadeildarþingmaðurinn og demókrainn Jack Reed, sem situr í nefnd um varnarmál, sagði að hafna ætti samningi sem hefði verið náð með beitingu hernaðarlegs valds til að efla olíuviðskipti. Hann sagði að hann vildi fá ítarlegar upplýsingar um lagalegar heimildir fyrir samningum.