R Fréttastofa RÚV

Bílar með mannlega ásjónu orðnir slitnir og snjáðir og því fjarlægðir

Veðrun var tekin að hrjá límmiða með myndum af bílum mannlega ásjónu í gluggum „Vitans“ svonefnda við bílastæðahús við Vitatorg í Reykjavík og því þótti Bílastæðasjóði nauðsynlegt að fjarlægja þá.

Fjarlæging miðanna er hluti af vinnu Bílastæðasjóðs við að bæta og fríska upp á ásýnd bílastæðahúsanna. Þetta kemur fram í skriflegu svari verkefnastjóra samskipta hjá Reykjavíkurborg.

Við greindum í gær frá undirskriftasöfnuninni sem nágrannarnir Máni Sigurðsson og kærasta hans hrundu í framkvæmd þar sem hvatt er til þess að einni myndanna sem eftir lifir verði hlíft og hinar settar upp aftur. Söfnuninni er ætlað að standa í einn mánuð. Mikilvægt væri að halda í eitthvað af því sem skapar sálina í borginni, eitthvað skrýtið sem fólki væri farið að þykja vænt um.

Borgin segir ljóst að margir tengi límmiðana sterkt við húsið en þeir hafi verið orðnir snjáðir, flagnaðir og litir orðnir talsvert daufir.

Ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort annað myndefni komi í staðinn eða hvernig gluggarnir verði útfærðir til framtíðar. Máni, sem er grafískur hönnuður, kvaðst óttast að gervigreindarmyndir yrðu settar upp í staðinn.

Lesa greinina á ruv.is
Samtal

Skráðu þig inn til að taka þátt í samtalinu.