Alls voru 376 þúsund manns atvinnulausir í Finnlandi í maí. Þetta er 20% aukning frá sama mánuði á síðasta ári.
Finnska ríkisútvarpið greinir frá þessum tölum hagstofunnar í Finnlandi. Fara þarf allt aftur til ársins 1998 til að finna sambærilegar tölur yfir atvinnuleysi í landinu.
Tölur um atvinnuleysi hækka yfirleitt í maímánuði þegar skólum lýkur og námsmenn og nýútskrifaðir koma út á atvinnumarkaðinn. Samkeppnin um störf er hörð og atvinnuleysi ungs fólks á aldrinum 15–24 ára mældist 23,2% í maí.
Óárstíðarleiðrétt atvinnuleysi í Finnlandi meðal fólks á aldrinum 15–74 ára mælist 12,7% nú – samanborið við 10,5% fyrir ári síðan.