Upprunalega átti keppnin að fara fram á Snæfellsnesi en þar sem Jökulhálsinn er enn á kafi í snjó var keppnin færð og eknar voru leiðar um Uxahryggi og Kaldadal.
Daníel og Ásta Sigurðarbörn hafa undanfarin ár keppt í breska meistaramótinu en mættu nú aftur til leiks hér heima á 2025 árgerð af Skoda Fabia RS af sömu tegund og notuð er í heimsmeistaramótinu.
Það kom því engum á óvart að fyrrum þreföldu Íslandsmeistararnir komu, sáu og sigruðu og settu meðal annars Íslandsmet á 4 af þeim 6 sérleiðum sem eknar voru.
Í öðru sæti komu sigurvegarar fyrstu umferðarinnar og ríkjandi Íslandsmeistarar, Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson. Með árangrinum hafa þeir nú 8 stiga forskot í Íslandsmótinu á Ingva Björn Birgisson og Valgarð Thomas Davíðsson sem komu í mark í þriðja sæti.
Í flokki aflminni bíla náðu Stefán Borgar Magnússon og Atli Þór Höskuldsson sínum fyrsta sigri á ferlinum.
Önnur umferð Íslandsmótsins í rallakstri fór fram í gær. Daníel og Ásta Sigurðsbörn gerðu vel þegar þau settu Íslandsmet í 4 af 6 sérleiðum.