R Fréttastofa RÚV

Þetta eru atriðin sem tónlistarsérfræðingar Rásar 2 ætla ekki að missa af á Airwaves

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst formlega á morgun með opnunarviðburði á hjúkrunarheimilinu Grund. Halla Tómasdóttir forseti Íslands setur hátíðina og á eftir henni stíga Rakel og Lón á stokk og flytja ljúfa tóna.

Líkt og áður geta hátíðargestir valið úr fjölmörgum viðburðum svo Menningarvefurinn leitaði á náðir nokkurra tónlistarsérfræðinga á Rás 2 til að kanna hvað væri efst á baugi hjá þeim í ár.

Spenntust fyrir Liim

Lovísa Rut Kristjánsdóttir í Popplandi er búin að kortleggja tónleikaplanið. Hún ætlar um víðan völl og er spenntust fyrir bandaríska rapparanum Liim.

„Af íslenskum flytjendum er ég spennt fyrir mörgum. Ég hugsa að ég hefji leika á tvíeykinu Marsibil á Rosenberg á fimmtudeginum kl. 19:00. Algjör stemning að kíkja á nýja Rósenberg, vonandi verður einhver að laumast til að reykja inni. Fer svo beint að sjá RAKEL í Iðnó kl. 21:10, gítar og góður söngur, til í tuskið. Þaðan mun ég brokka í Kolaportið til að sjá Adult DVD klukkan 22:30. Breskt dans-pönk lóðbeint frá Leeds, takk,“ segir Lovísa og hugsar að kvöldið endi þar, ekki nema andinn komi yfir hana og hún kíki á Digital Ísland í Ráðhúsinu.

„Á föstudeginum ætla ég að sýna mér mildi og mæta aðeins seinna,“ segir hún, fyrsta mál á dagskrá eru tónleikar ungsveitarinnar Einakróna sem leikur fyrir dansi á Nasa 20:30. Breska sveitin Pollyfromthedirt treður svo upp á sama stað 22:30. „Þjóðlagatónlist og lo-fi-pönk, eflaust eitruð blanda, það verður að koma í ljós. Ef ég verð ekki orðin syfjuð þá ætla ég að ná strákunum í Spacestation upp úr miðnætti á föstudagskvöldinu en þeir spila í Ráðhúsinu.“

Lovísa Rut gerir ráð fyrir miklu flakki á fjölbreyttum laugardegi sem hefst með tónleikum KOIKOI á Lemmy 19:40.

„Nýjasta platan On Happiness in Dreams er að trylla indírokkarana í Evrópu. Þaðan ætla ég að stökkva í Kolaportið til að sjá Amor Vincit Omnia klukkan 21.00. Vonandi taka þau uppáhalds lagið mitt, Ber. Og þar dvel ég lengur til að sjá bandaríska rapparann Liim sem tekur við af Amor. Tyler, The Creator hefur lagt blessun sína yfir hann, sem er grænt ljós í mínum bókum. 21 árs Brooklyn-drengur í Kolaportinu, búmm. Ég næ svo kannski 2-3 lögum með Birni áður en ég þarf að skokka yfir í Iðnó til að sjá David Bay sem hefur leika á miðnætti. Og þegar hann hefur lokið sínu setti ætla ég að þakka kærlega fyrir mig og segja þetta gott.“

Öfgahljómsveit frá Kanada og bíó um Íslandsvin

Andri Freyr Viðarsson í Morgunverkunum ætlar að sækja fjölbreytta viðburði í vikunni. Strax á fimmtudag ætlar að kíkja á tónleika með „öfgahljómsveitinni“ PISS frá Kanada, eins og hann orðar það. Þetta er hávært band á mörkum nokkurra tónlistarstefna sem blandar saman tónlist, ljóðlist, gjörningalist og ólíkum tegundum sjónlista á tónleikum sínum.

Næsti viðburður verður líklega ekki ólíkari Kanadamönnunum í PISS en á föstudag ætlar Andri Freyr að hlýða á Júníus Meyvant í Fríkirkjunni en hann þarf ekki að kynna fyrir lesendum.

Laugardagurinn hefst svo snemma í Bíó Paradís, í það minnsta á Airwaves-skalanum. Þar verður heimildarmyndin Radioheart á dagskrá klukkan 15. Hún fjallar um útvarpsmanninn Kevin Cole og ástríðu hans fyrir tónlist. Hann hefur um langt árabil starfað á KEXP í Seattle, útvarpsstöð sem Airwaves-gestir ættu margir hverjir að kannast við. Meðal viðmælenda í myndinni eru Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson úr Of Monsters and Men en KEXP sendi eftirminnilega út tónleika sveitarinnar á Kex Hostel á Airwaves 2011.

Það er ekki útilokað að Andri Freyr rekist svo á Lovísu Rut á laugardeginum því hann ætlar ekki að láta sig vanta á tónleika Liim í Kolaportinu.

Airwaves-helginni lýkur svo í Eldborg á sunnudag. Þar ætla The Streets að flytja plötuna A Grand Don’t Come for Free í heild sinni og það í fyrsta sinn á sviði. Eftir hlé mega gestir svo eiga von á helstu smellum af ferli þessarar ástsælu bresku hip-hop sveitar.

Tvær sveitir sem sigruðu Músíktilraunir – með rúmlega 20 ára millibili

Rokklandsstjórinn Ólafur Páll Gunnarsson býður líka upp á þétta dagskrá yfir þessa Airwaves-helgi. Meðal þeirra atriða sem hann setur á blað eru tónleikar sigurvegara síðustu Músíktilrauna, progrokksveitarinnar Falinn Gjóður. Þetta efnilega band treður upp á Lemmy á fimmtudagskvöld klukkan 19:40.

Þaðan er förinni heitið í Ráðhúsið þar sem aðrir sigurvegarar Músíktilrauna ætla að telja í klukkan 21:30, hljómsveitin MAMMÚT. Kvöldinu lýkur svo í Iðnó þar sem ástralska indírokksveitin The Gnomes leikur fyrir dansi. Þetta er ung sveit sem er innblásin af gömlu rokki.

Föstudagskvöld Óla Palla byrjar í Ráðhúsinu 19:10 á tónleikum indírokkaranna í Oyama. Hitt bandið á meðmælalistanum fyrir föstudaginn treður einnig upp í Ráðhúsinu, það eru rokkararnir í Agent Fresco.

Laugardagurinn er álíka þéttur og fimmtudagurinn hjá Óla Palla, með þrennum tónleikum. Fyrst á lista er fjölskylduþjóðlagasveitin Blood Harmony sem leikur ljúfa tóna frá 19:30 á Rosenberg. Næstur á dagskrá er Bjarni Daníel sem byrjar 20:10 í Ráðhúsinu. Rapparinn Birnir lokar svo kvöldinu á lista herra Rokklands. Hann kemur fram í Kolaportinu 22:50.

Lesa greinina á ruv.is
Samtal

Skráðu þig inn til að taka þátt í samtalinu.